Leita í fréttum mbl.is

Tölfræði

gjlgjflsdfjlsædkjlæskjd

Hér er verkefnið mitt 


Svona setur þú glogster-slóðina inn á bloggið þitt

1.Opnaðu glogster verkefnið þitt

2.Finndu embed slóðina neðst í skjalinu.

3. Afrita/copy hana og vista.-Til að vista þarftu að fara inn í Byrja takkann neðst til vinstri á stikunni og smella á Öll forrit, finndu Fylgihlutir og smelltu á það og finndu Skrifblokk.

Þú átt að líma/paste slóðina sem þú afritaðir af Glogster verkefninu inn í Skrifblokkina. Þegar þú hefur afritað slóðina áttu að taka/stroka allt í burtu nema það sem er innan fyrstu gæsalappanna (gæsalappirnar eiga að líka að fara í burtu). Það afritar þú og þá ertu komin með hlekkinn sem byrjar á http://

Þegar þú ert komin með tilbúa slóð opnar þú bloggið þitt, bloggar um verkefnið og setur síðan neðst hlekk og skirfar hér finnur þú verkefnið mitt, lýsir/hightligtar það velur hlekkinn efst við hliðina á youtube merkinu og límir slóðina inn á slóð hlekks og smellir á setja inn


Fuglaverkefni

Veldu þrjá til fjóra fugla út mismunandi flokkum á Fuglavefnum (http://www1.nams.is/fuglar/) og gerðu veggspjald um þá í  glogster . 

Á veggspjaldinu á að koma fram þessar upplýsingar um fuglinn.

·        flokkur,

·        stærð(lengd,þyngd, hæð,)

·        fæða

·        kjörlendi (hvar hann vill búa) hvar verpir hann eggjunum sínum

·        hvenær hann verpir eggjunum sínum

·        fjöldi eggja

·        hve lengi liggur hann á eggjunum sínum

·        hvort hann er staðfugl eða farfugl

·        Dvalartími á Íslandi.

Textinn á að vera í samfelldu máli

Á veggspjaldinu eiga að vera myndir af fuglunum og jafnvel myndbönd og hljóð.   Verið dugleg að nota ímyndunaraflið og gera þetta skemmtileg. Vistið skjalið á réttum stað inn í bekknum ykkar. 

Það eru góðar upplýsingar hér á bloggsíðunni hvernig þið setið inn myndir og myndbönd á glogster. Verið dugleg að lesa ykkur til og hjálpa hvort öðru. 

Gangi ykkur vel.


Glogster

Glogster er forrit til að búa til veggspjald í tölvunni. Til að geta unnið í því þarft þú að búa þér til þinn að aðgang. 

<Að búa til aðgang:

 

<!--1.    Farið inn á www.glogster.com

<!--2.      I‘m a student

<!--3.      Sláið inn 86B3U8 þar sem stendur „Educator / school code“

<!--4.     Hafið sama nickname/notendanafn og password/lykilorð og þið notið til að                  skrá ykkur í skólatölvuna 

<!   5.   SIGN UP

 Þegar þið eruð komin inn:

<!--1.      CREATE NEW GLOG

<!--2.    Veljið annað hvort Vertical=Lóðrétt eða Horizontal=Lágrétt, eftir því sem þið kjósið.

a.      Hægt er að fara More premium templates og skoða hvað aðrir hafa verið að gera til að fá innblástur. Hægt er að velja yfirflokka og undirflokka þar sem stendur Discipline og Subject, t.d. Social Studies og History.

<!33. Þegar þið eruð komin með auða blaðsíðu (ATH. þið getið eytt hlutunum sem birtast á síðunni með því að smella á þá og ýta á „Delete“) er kominn tími til að þið leyfið hugmyndafluginu að ráða.

<!44. Efst á blaðsíðuna birtist tækjastika sem á stendur : (ef hún birtist ekki þá ýtiði á TOOLS)

a.      Text – Þar getið þið valið textablöðrur eða önnur form sem þið viljið hafa textann ykkar í.

b.      Graphics – Það eru alls konar myndir eða „graffík“ sem þið getið sett inn.

c.       Image – Þarna setjið þið inn myndir ef þið viljið. Til að setja inn mynd sem þið hafið vistað í tölvunni veljið þið örina sem bendir upp. Til að setja inn myndir af netinu veljið þið bréfaklemmuna og setjið inn linkinn af myndinni í reitinn sem birtist. Þið gætuð þurft að bíða aðeins eftir að myndist birtist.

d.      Wall – Þar getið þið valið bakgrunn. Annað hvort mynd sem þið hafið vistað á tölvunni, frá galleríinu sem er í forritinu eða hreinan lit.

e.      Page – Þar getið þið sett bakgrunn á síðuna ykkar, ekki veggspjaldið ykkar heldur það sem er fyrir utan blaðið.

f.        Audio – Þar getið þið sett inn hljóðbrot. Virkar alveg eins og að setja inn mynd (Image).

g.      Video – Þar getið  þið sett inn video. Virkar alveg eins og að setja inn mynd (Image).

h.    Data – Þar getið þið sett inn skjöl. Þið þurfið ekki að nota þennan valmöguleika.

Hvernig ég vista veggspjaldið mitt:

Ýta á SAVE ofarlega í hægra horninu

Skýrið verkefnið ykkar einhverju nafni

Discipline - Social Studies (hægra megin) og hakið við History (efst)

Grade: 6 eða þann áragng sem þið tilheyrið

Ýtið á UNFINISHED

FINISH SAVING

DASHBOARD

Þá eigið þið að sjá "gloggið" ykkar á upphafssíðunni ykkar.

Lokið vafranum.

Góða skemmtun og gangi þér vel 

 


Að vista rafræn skjöl

Nú átt þú að vista verkefni á box.com

Notaðu chrome vafrarann

Skráðu þig inn á box.com

Þegar þú ert komin/n inn átt þú að búa til möppur 4 möppur merktu þær íslenska, samfélagsfræði, náttúrufræði og stærðfræði

Ýttu á takkann +New og síðan New folder skrifaðu nafn námsgreinarinnar í línuna Folder name sem birtist.

Endurtaktu þetta fyrir allar námsgreinarnar.

Opnaðu náttúrufræðimöppuna og smelltu á hnappinn Uppload síðan uppload files finndu powerpoint glærurnar þínar. Smelltu á opna

Nú eru glærurnar þínar komnar inn á box.com opnaðu þær þar.

Ofarlega til hægri stendur get a link to this file smelltu á hann

Smelltu á hnappinn sem stendur Embed  nú birtist fullt af stöfum afritaðu (copy) þá.

Nú ferðu inn á hvalabloggið þitt og smellir á hnappinn hægra meginn Nota HTML- ham

Þar eru fullt af stöfum settu bendilinn fyrir neðan alla stafina og vistaðu embed slóðina.

Mundu að vista reglulega bloggfærsluna þína.

 

 

 

 

 


Box.com

Nú átt þú að stofna geymslusvæði inn á box.com fyrir rafrænu verkefnin þín.

Þú stofnar box.com með því að:  

  1. Fara inn á box.com
  2. smelltu á hnappinn sign up efst í hægra horninu
  3. þar sérðu reitin personal free, ýttu þar á hnappinn sign up now 
  4. þá færðu upp síðu þar sem þú átt að skrifa nafnið þitt, netfang og lykilorð. 
  5. þú átt að nota skólanetfangið (nafn.nafn@grunnskolar.is) og lykilorðið sem þú notar til þess að ská þig inn í tölvuna í skólanum.
  6. nú færðu póst frá box.com þar sem þú þarft að staðfesta skráninguna.
  7. nú getur þú notað geymslusvæðið box.com en þú þarft að vista verkefnin þín þar áður en þú setur þau inn á bloggið. 

 

Gangi ykkur vel.  


Hvalaverkefni

Nú eigið þið að segja frá hvalaverkefninu ykkar. 

Það sem á að koma fram í því er:

 

  • Hvað varstu að gera þegar þú vannst hvalverkefnið þitt
  • Hvað lærðir þú
  • Hvernig fannst þér þetta verkefni

Munið að nota púkann hér að ofan til að fara yfir stafsetninguna.


Að búa til bloggsíðu

 

Nú eigið þið að búa til bloggsíðu sem tengist námi ykkar í 6. bekk.

  • Þið farið inn á heimasíðuna blog.is
  • Hægra megin efst á síðunni er hnappur sem heitir skráning, smellið á hann.

Skref 1

  • Búðu til notendanafn það sama og þú notar í skólatölvunni
  • Búðu til lykilorð einnig það sama og þú notar í skólatölvunni
  • Skrifaðu niður kennitöluna þína
  • Þegar þú setur netfangið þitt notaðu netfangið á skólapóstinum
  • Ýttu á áfram

Skref 2

  • Hér getur þú sagt í örfáum orðum frá þér
  • Ýttu á áfram

Skref 3

  • Veldu útlit á bloggið þitt
  • Ýttu á áfram

Skref 4

  • Veldu já fyrir að sýna gestabók
  • Í Spurningunni hverjir mega skrifa athugasemdir veldur þú Allir (valmöguleika 1)
  • Veldu Nei í að eiga óskráðir notendur að staðfesta athugasemdir með tölvupósti
  • Veldu í sjáist á listum á blog.is
  • Veldu Nei í að læsa bloggi með lykilorði
  • Ýttu á ljúka skráningu

Skref 5

  • Skráningu er lokið
  • Farðu í póstinn þinn og staðfestu skráninguna.
  • Nú eigið þið að gerast bloggvinir mínir, Elínar og Berglindar.
  • Skráið ykkar notendanafn og lykilorð efst uppi
  • Farið inn á síðuna mína http://thorunno.blog.is/blog/thorunno/  smellið á tengilinn bloggvinir efst upp til hægri og sendið á mig vinabeiðni
  • Farið síðan inn á síðu Elínar Ingu http://elininga.blog.is/blog/elininga/, bæta elininga við.
  • Farið síðan inn á síðuna hennar Berglindar http://berglindjack.blog.is/blog/berglindjack/og bætið henni einnig við sem vini.  

Gangi ykkur velSmile


Velkomin á bloggsíðuna mína.

Sælir kæru nemendur

Höfundur

Þórunn Ólafsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband